Auglýsing

Eldgosið stöðugt og hraun flæðir mestmegnis til norðurs

Eldgosið hefur verið nokkuð stöðugt síðustu daga og áfram gýs úr einum gíg. Frá honum flæðir hraun mestmegnis til norðurs en einnig safnast hluti hraunsins upp sunnan megin við gíginn. Hraunið sem fer til norðurs fer í hrauntjörnina við Sýlingarfell og þaðan áfram norður fyrir það þar sem hraunið þykknar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands sem var birt í dag. Þar kemur einnig fram að um hádegisbilið í gær hafi lítið gat komið í gíginn vestanverðan og þaðan flæddi hrauntaumur stutta leið í vestur í átt að Sundhnúk en sá taumur hefur ekki verið virkur frá því í gær en lítil sem engin skjálftavirkni er sögð á gosstöðvunum.

Flæðið nokkuð stöðugt

Á tímabilinu 3. – 10. júní var hraunflæði frá eldgosinu metið um 10 m3/s og síðan þá hafa ekki orðið markverðar breytingar á virkni eldgossins sem bendir til að flæðið sé nokkuð stöðugt. Þrátt fyrir að eldgosið sé enn í gangi mælist landris í Svartsengi (eins og í síðasta eldgosi). Niðurstöður líkanreikninga sýna að landrisið í Svartsengi sé vegna kvikuinnflæðis sem er á bilinu 1-2 m3/s og bætist við í kvikusöfnunarsvæðið,“ segir á vefsíðu Veðurstofunnar.
Þá segir enn fremur að ef kvikusöfnun undir Svartsengi ásamt hraunflæði á yfirborði er lagt saman sýnir það svipað kvikuflæði frá dýpi og fyrir eldgosið. Enn þá er talsverð óvissa í líkanreikningum og mati á hraunflæði frá eldgosinu síðustu vikuna sem getur haft áhrif á þetta mat. Áfram verður fylgst náið með framvindu atburðarins.

Eftirfarandi línurit sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023. Rauða línan sýnir áætlað rúmmál kviku sem hefur bæst við kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi frá 30. maí til 17. júní.

Gasmengun mun færast í átt að höfuðborginni

Samkvæmt veðurspá er suðaustanátt í dag, en suðlægari í kvöld. Gasmengunin fer til norðvesturs og síðar norðurs og má gera ráð fyrir að mengun mælist á norðanverðu Reykjanesi. Á morgun er hæg breytileg og síðar vestlæg átt. Gasmengunin mun þá færast í átt að höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að fylgjast með rauntímamælingum ýmissa gastegunda á vefnum loftgaedi.is og gasdreifingarspá hér .

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing