Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nokkuð rólega nótt að baki en þrátt fyrir það eru tveir vistaðir í fangaklefa nú í morgunsárið. Tilkybnt var um innbrot og þjófnað á skemmtistað í 101 auk þess sem brotist var inn í fataverslun í sama póstnúmeri en samkvæmt lögreglu eru málin í rannsókn.
Þá fékk lögreglan tilkynningu um tónlistarhávaða í hverfi 113. Laganna verður mættu á staðinn og sagði húsráðanda að lækka. Önnur verkefni lögreglunnar voru eftirfarandi frá tímabilinu 17:00 í gær til 05:00 í morgun.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seljarnarnes:
Nokkuð var tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi á varðsvæði lögreglustöðvar 1. Gengu þeir ýmist á brott eða þeim komið til sín heima.
Tilkynnt um innbrot og þjófnað á skemmtistað í hverfi 101.
Tilkynnt um innbrot í fataverslun í hverfi 101. Málið í rannsókn lögreglu.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
Ekkert fréttnæmt.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
Tilkynnt um þjófnað á vespu í hverfi 109.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
Tilkynnt um tónlistarhávaða í hverfi 113. Sagt að lækka.
Ofurölvi ekið heim til sín.