Lögreglan á Suðurlandi sendi frá sér tilkynningu þar sem óskað er eftir vitnum að akstri bifreiðar og eftirför lögreglu sem átti sér stað upp úr kl. 22 á Selfossi og nágrenni þann 4. júlí.
Ef einhver varð vitni að akstrinum eða geta gefið frekar upplýsingar er fólk beðið um að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 444-2000 eða senda á netfangið sudurland@logreglan.is.
Hér er hægt að sjá tilkynningu lögreglunnar á Facebook síðu hennar