Tveir ökumenn voru atöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Einn þeirra var með fíkniefni á sér og án ökuréttinda en hinn var sviptur ökuréttindum á staðnum.
Þá var tilkynnt um ofurölvi einstakling fyrir utan skemmtistað í miðbænum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í dagbók sinni að „ekki reyndist unnt að koma viðkomandi heim og þurfti því að leyfa honum að gista í fangaklefa þangað til runnið væri af honum.“
En þrátt fyrir frekar viðburðarlitla dagbók lögreglunnar eru 8 sem gista fangageymslur lögreglunnar á þessum frídegi verslunarmanna.