Auglýsing

Þetta er viðvörunarkort og sýnir ástand eldstöðvakerfa á Íslandi

Þetta viðvörunarkort er gefið út af Veðurstofu Íslands og sýnir núverandi ástand eldstöðvakerfa á landinu. Það er uppfært kl. 09:00 daglega og sýnir merki um byrjandi hættuástand strax og þess verður vart.

Skýringar: Litakóðinn er í samræmi við tilmæli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) og gefur flugmönnum, almenningi og flugmálayfirvöldum upplýsingar um ástand eldfjalla. Tilkynningar verða gefnar ef þarf, bæði vegna dvínandi og vaxandi virkni, ásamt lesmáli um eðli óróa eða goss; ekki síst með tilliti til gosmakkar og líklegra áhrifa. Merking hvers litar er útskýrð hér:

GRÁTT: Eldstöðin virðist óvirk. Vöktun er þó lítil og því er ekki hægt að fullyrða að svo sé.

GRÆNT: Virk eldstöð, engar vísbendingar um að gos sé væntanlegt.

eða, eftir að virknin hefur verið lækkuð frá hærra stigi:

Umbrot eru talin afstaðin og engar vísbendingar um að gos sé væntanlegt.

GULT: Eldstöðin sýnir merki um virkni, umfram venjulegt ástand.

eða, eftir að virknin hefur verið lækkuð frá hærra stigi:

Umbrot hafa minnkað markvert en vel er fylgst með, ef vera kynni að þau aukist á ný.

APPELSÍNUGULT: Eldstöðin sýnir aukna virkni og vaxandi líkur á eldgosi.

eða,

Eldgos er í gangi, þó með lítilli eða engri öskuframleiðslu.

RAUTT: Eldgos er yfirvofandi eða hafið – líklegt er að aska berist upp í lofthjúpinn.

eða,

Eldgos stendur yfir og veruleg aska berst upp í andrúmsloftið.

HÉR ER HÆGT AÐ SJÁ STÆKKAÐ KORT

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing