Auglýsing

Ók á stúlku og stakk af: Lögreglan leitar af ökuníðing

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á unglingsstúlku á Vatnsendavegi í Kópavogi, við Ögurhvarf, um þrjúleytið í fyrradag, miðvikudaginn 14. ágúst.

Stúlkan, ásamt vinkonu, var að ganga til vesturs og yfir Vatnsendaveg þegar bifreið var ekið suður götuna og á stúlkuna. Hún hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og rann síðan af henni, en ökumaðurinn skeytti því engu og ók rakleiðis af vettvangi.

Töluverð umferð var þarna á þessum tíma, en enginn sá ástæðu til að stöðva og athuga með líðan stúlkunnar. Hún fór til síns heima eftir slysið, lét foreldra sína vita og í framhaldinu höfðu þeir samband við lögreglu. Stúlkunni var jafnframt komið undir læknishendur, en frekari upplýsingar um meiðslin liggja ekki fyrir.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.

Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing