Auglýsing

Benti í átt að látinni dóttur sinni í Krýsuvík

Íslenskur faðir sem talinn er hafa banað dóttur sinni benti lögreglumönnum í þá átt sem finna mætti dóttur hans. Það gerði hann eftir að hafa verið handtekinn af sérsveitarmönnum á svæði skammt frá Krýsuvíkurvegi, rétt hjá afleggjaranum að vegi til Vigdísarvalla.

Líkt og Nútíminn greindi fyrstur frá var stúlkan tíu ára gömul og er dóttir mannsins. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi þegar lífgunartilraunir viðbragðsaðila báru ekki árangur. Þá hefur komið í ljós að maðurinn á að baki einhvern sakaferil, meðal annars fyrir kannabisræktun og fíkniefnainnflutning.

Maðurinn var fyrir skömmu dæmdur í gæsluvarðhald.

Uppfært:

TILKYNNING FRÁ LÖGREGLUNNI

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 24. septemberað kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti ungrar stúlku um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Maðurinn er faðir áðurnefndrar stúlku, sem var 10 ára, og er hann grunaður um að hafa orðið  henni að bana.

Maðurinn hringdi sjálfur í Neyðarlínuna til að komast í samband við lögreglu, en hann var í byrjun óljós um bæði atvik og staðsetningu. Eftir nokkra stund fékkst skýrari mynd af málinu og þá um leið voru viðbragðsaðilar sendir á staðinn, sem reyndist vera í hrauninu gegnt Vatnsskarðsnámu við Krýsuvíkurveg. Þar var maðurinn handtekinn á sama tíma og leitað var að stúlkunni, en hún fannst skammt frá. Strax voru hafnar endurlífgunartilraunir, en þær báru því miður ekki árangur og var stúlkan úrskurðuð látin á vettvangi.

Við handtöku mannsins naut embættið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing