Auglýsing

Fangageymslur nánast fullar á þriðjudagsmorgni: Hópslagsmál og líkamsárásir

Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en samkvæmt upplýsingum frá embættinu gista nú 11 einstaklingar fangageymslu lögreglu á þessum þriðjudagsmorgni.

Meðal þess sem kom inn á borð lögreglu og er til rannsóknar eru tvær líkamsárásir í heimahúsum. Þá var einnig tilkynnt um hópslagsmál en samkvæmt dagbók lögreglunnar er vitað hverjir tóku þátt í slagsmálunum.

Þá var einn aðili handtekinn en sá var aðili að umferðaróhappi en hafði stungið af frá vettvangi. Eitthvað var um akstur undir áhrifum og þá reyndi einn sem lögreglan stöðvaði undir stýri að ljúga til um nafn sitt en hafði ekki erindi sem erfiði og sáu laganna verðir í gegnum þá lygi hans.

En hann var ekki sá eini sem ók sviptur ökuréttindum því annar var handtekinn grunaður um slíkt á svæði lögreglustöðvar fjögur en hún sér um Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing