Auglýsing

Farþegar um borð í flugvél American Airlines stíga inn í átök karls og konu – Myndband

Myndband fer nú sem eldur í sinu um samskiptamiðilinn X þar sem farþegar skerast í leikinn þar sem karl og deila og eru sögð hafa lagt hendur hvort á annað.

Myndbandið hefst þar sem tveir karlmenn standa yfir farþegar á fyrsta farrými og segja hann hafa lagt hendur á konuna og vara hann við að snerta hana aftur.

Maðurinn segir eitthvað sem ekki heyrist áður en þeir sem yfir honum standa hóta honum handtöku ef hann snertir hana aftur.

Konan sést svo færa sig um sæti og halda þau áfram að skiptast á orðum en þá sakar maðurinn hana um að hafa slegið sig að fyrra bragði.

Þessu neitar konan og segist ekki hafa slegið hann heldur einungis sett hönd sína fyrir munn hans til að þagga niður í honum.

Greinilega er enn mikill hiti í báðum aðilum þegar myndbandið endaði en ekki er vitað hvort einhver var handtekinn vegna málsins en lögreglan mætti þó á staðinn til að yfirheyra viðstadda áður en fólki var hleypt út úr vélinni.

Óhætt er að segja að það hafi ekki vakið mikla kátínu farþega.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing