Auglýsing

Óttast um heilsu Diddy í fangelsinu: Sjáanlegt þyngdartap vakti athygli

Milljarðamæringurinn og tónlistarmógúllinn Sean Combs lítur ekki út fyrir að vera mikið „Puffy“ þessa dagana og það er ekki bara af því að hann breytti nafni sínu úr Puffy í Diddy. Hann hefur misst slatta af kílóum en það er ekki vegna þess að hann hafi verið á bak við lás og slá líkt og fjölmargir miðlar vestanhafs höfðu velt fyrir sér og skrifað um.

Fréttamiðillinn TMZ greinir frá því að Diddy hafi litið töluvert grennri út en vanalega þegar hann mætti í réttarsalinn á fimmtudaginn og þá var andlit hans var mjórra sem varð einmitt til þess að margir fóru að álykta að væri ekki að borða í fangelsinu. Aðrir töldu að dómsmálið væri farið að hafa áhrif á hann.

Þessi mynd sýnir Diddy þegar hann mætti í réttarsal en hún er að sjálfsögðu teiknuð eins og allir taka eftir.

Hins vegar segja heimildir TMZ að Diddy hafi misst þyngdina ÁÐUR en hann var handtekinn af alríkislögreglunni í síðasta mánuði, og að þetta sé afleiðing af heilbrigðum lífsstíl.

Heimildir TMZ segja að Diddy hafi verið að æfa til að halda sér í góðu líkamlegu formi þó það sé óljóst hversu mikið hann léttist. Ljósmyndir sem teknar voru af Diddy áður en hann var handtekinn í New York sýna greinilegt þyngdartap.

Niðurstaða TMZ er sú að þyngdartapið hafi ekkert með það að gera að hann sé ekki að borða í fangelsinu. Já, maturinn er ömurlegur og ekki það sem hann er vanur, en heimildir TMZ segja að hann SÉ að borða.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing