Lögreglan lokaði Reykjanesbrautinni á áttunda tímanum í morgun en þrír bílar lentur þar í hörðum árekstri – nánar tiltekið við álverið í Straumsvík. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru þeir allir einir í bílum sínum og voru allir fluttir á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi.
Einn ökumaður er alvarlega slasaður en Reykjanesbrautinni var lokað um tíma vegna slyssins á meðan viðbragðsaðilar athöfnuðu sig.
Reykjanesbrautin var svo opnuð aftur um hálf níu í morgun.