Auglýsing

Stöðugur hraði á landrisi og kvikusöfnun: Eldgos í lok nóvember

Veðurstofa Íslands greinir frá því í dag að út frá nýju mati á kvikusöfnuninni má reikna með að líkur fari að aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi í lok nóvember. Landris og kvikusöfnun í Svartsengi heldur áfram og hefur verið á stöðugum hraða síðustu vikur. Jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina er áfram mjög lítil en síðustu vikur hafa eingöngu mælst nokkrir smáskjálftar á dag.

Veðurstofan hefur undanfarið lagt mat á hversu mikið magn af kviku þarf að bætast við undir Svartsengi til að koma af stað næsta atburði. Matið hefur verið uppfært frá því í síðustu viku, út frá nýjum líkanreikningum sem byggðir eru á GPS-mælingum og gervitunglagögnum. Út frá þessu nýja mati á kvikusöfnuninni má reikna með að líkur fari að aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi í lok nóvember. Þetta mat er háð þeim aflögunargögnum sem eru til staðar á hverjum tíma. Ef hraði landriss í Svartsengi breytist mun þetta mat breytast í samræmi við það.

Horft bæði til stöðu kvikusöfnunar og vaxandi skjálftavirkni til að meta hvort að styttist í næsta atburð

Í aðdraganda síðustu tveggja eldgosa fór skjálftavirkni á svæðinu norðvestan við Grindavík vaxandi vikurnar áður en gosin hófust. Talið er að þessi skjálftavirkni sé vísbending um það að þrýstingur í kvikuhólfinu sé farinn að aukast og að það styttist í næsta atburð.

Lærdómur af fyrri kvikuhlaupum og eldgosum nýtist við að meta hversu mikið magn af kviku þarf að bætast við undir Svartsengi til að koma af stað næsta atburði. Það tímabil þar sem auknar líkur eru taldar á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi markast af neðri og efri óvissumörkum en einnig er mikilvægt að horfa á hvernig skjálftavirknin vex samhliða kvikusöfnuninni.

Ef markverð aukning á skjálftavirkni mælist á svipuðum tíma og rúmmál kviku undir Svartsengi er komið innan óvissumarka má gera ráð fyrir því að líkur á nýju kvikuhlaupi og mögulegu eldgosi séu farnar að aukast. Líkurnar munu síðan aukast smám saman eftir því sem meira magn kviku bætist við og skjálftavirkni eykst. Mögulega þarf að gera ráð fyrir því að hætta á eldgosi sé talin mikil í nokkrar vikur áður en kvikuhlaup og mögulega eldgos hefst.

Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt frá því í síðustu viku. Nýja hættumatið gildir til 12. nóvember, að öllu óbreyttu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing