Auglýsing

Unnusta Conor McGregor lætur fórnarlamb Conor heyra það

Eins og við sögðum ykkur frá hér á dögunum var Conor McGregor fundinn sekur um að hafa nauðgað Nikita Hand og var hann dæmdur til að greiða henni 36 milljónir í skaðabætur.

Dee Devlin, unnusta Conor, hefur stutt sinn mann í gegnum þetta ferli og segist trúa honum þegar hann segir að hann hafi stundað kynlíf með Nikita sem þau hafi bæði viljað. Þrátt fyrir það að hann hafi verið að halda framhjá Dee er hún honum sem stoð og stytta í gegnum þetta.

Dee birti mynd á samfélagsmiðlum þar sem hún og Conor eru saman með tvö af fjórum börnum þeirra þar sem hún skrifar:

„Ég og minn maður höfum búið okkur fallegt líf saman. Ég elska hann, treysti honum og TRÚI HONUM! Börnin okkar fjögur með brosin sín og hamingju í hjörtum eru vitnisburður um hvernig maður hann er og hver við erum! Það hefur enginn rétt á að koma með athugasemdir um samband okkar. Við treystum hvort öðru og elskum hvort annað. Ekkert og enginn mun breyta því. Fjölskyldan okkar stendur saman.“

Dee hættir ekki þarna og fer að setja inn í „story“ skilaboð sem eru ætluð Nikita:
„Ímyndaðu þér KONU, sem á kærasta og barn og er að senda grófar myndir af sjálfri sér á mann annarrar konu sem á fjölskyldu og barn á leiðinni. Þessi kona þykist þekkja mig, en sendir samt ítrekað skilaboð og myndir af sér á manninn minn. Í alvöru?  Á meðan þú varst á þriggja daga fylleríi, og sendir afsakanir á barnið þitt hvers vegna mamma er ekki heima í þrjá daga. Allan tímann varstu blindfull á hótelherbergi og dansandi um bílastæðið hjá hótelinu. Hverskonar KONA ertu eiginlega?“

 

Á næstu síðu í skýtur hún enn öðru skoti og segist ætla að vara syni sína við konum eins og henni.

Dee heldur áfram:

EFTIRLITSMYNDAVÉLIN LÝGUR EKKI

Ég hlakka til þess dags þegar heimurinn fær að sjá myndböndin af þér frá þessu kvöldi og hvernig þú hagaðir þér. Það er allt í lagi að hafa gaman. Þetta eru alvöru sönnunargögn, myndataka sem enginn vissi af og þú segist ekki muna eftir. Fyrir mér virðist þú vera sú sem ert að beita kynferðisofbeldinu í lyftunni. Það virðast allir vera að forðast þig.“

 

Hún bætir svo við í lokin: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing