Auglýsing

Sjáðu stórkostlegt myndband af flugeldaveislunni frá Akureyri um áramótin

Á hverju ári kemur fjöldi ferðamanna til Íslands til að upplifa einstök áramót og fátt fangar töfrana betur en myndbandið sem YouTube rásin Just Icelandic hefur gefið út af stórbrotinni flugeldasýningu yfir Akureyri.

Myndbandið er tekið með dróna hátt yfir Akureyri á miðnætti á gamlárskvöld 2024-2025 og sýnir hvernig bæjarbúar í höfuðstað Norðurlands fagna nýju ári með tilkomumiklum ljósasýningum og sprengingum.

Þó flestir erlendir gestir sæki höfuðborgarsvæðið heim yfir áramótin sýnir þetta magnaða myndband að Akureyri gefur höfuðborginni lítið eftir.

Hljóðið er tekið upp á jörðu niðri en myndbandið í loftinu, hátt yfir svæðinu.

Myndbandið kemur frá YouTube-rásinni Just Icelandic og er hægt að horfa á það í spilaranum hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing