Auglýsing

Arion banki eykur starfsemi á Norðurslóðum – Benedikt Gíslason ræðir tækifæri og áhrif Trump

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, mætti í Hluthafaspjallið á streymisveitunni Brotkast og ræddi þar um aukna starfsemi bankans á Norðurslóðum og hvernig þróunin á svæðinu hefur leitt til nýrra viðskiptatækifæra fyrir íslensk fyrirtæki.

Hann fjallaði einnig um hvernig áherslur Bandaríkjanna, sérstaklega í ljósi nýlegra yfirlýsinga Donald Trump, hafi aukið alþjóðlega athygli á svæðinu.

Arion banki styrkir stöðu sína í Færeyjum og Grænlandi

Benedikt sagði að Arion banki hefði á undanförnum árum eflt þjónustu sína í Færeyjum en þar þjónustar bankinn nú nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins.

„Við höfum verið að byggja upp tengsl í Færeyjum og veita fyrirtækjaþjónustu á svæðinu. Það felur í sér bæði hefðbundna fjármálaþjónustu og stuðning við sjávarútvegsfyrirtæki og aðrar lykilatvinnugreinar,“ sagði hann.

Á sama tíma hefur bankinn horft til Grænlands og Kanada, þar sem íslensk fyrirtæki í sjávarútvegi og endurnýjanlegri orku hafa aukið umsvif sín.

Benedikt segir að tækifærin séu mikil, sérstaklega í ferðaþjónustu.
„Við sjáum ferðaþjónustu á Grænlandi vera á sama stað og Ísland var fyrir um 40 árum. Nú hefur verið opnaður alþjóðlegur flugvöllur þar, sem gæti gjörbreytt þróun ferðaþjónustunnar á svæðinu.“

Aukinn alþjóðlegur áhugi á Norðurslóðum

Á síðustu árum hefur Arion banki tekið virkan þátt í alþjóðlegri umræðu um fjárfestingar á Norðurslóðum.

Bankinn hefur til dæmis haldið ráðstefnur í London þrjú ár í röð, þar sem sjálfbærar fjárfestingar á svæðinu eru til umfjöllunar. „Við höfum verið í samskiptum við erlenda banka og fjárfesta sem hafa sýnt aukinn áhuga á svæðinu,“ sagði Benedikt og bætti við að bankinn hafi síðustu mánuði fengið fjölmargar fyrirspurnir um fjárfestingartækifæri.

Trump setur Grænland í sviðsljósið

Benedikt ræddi einnig um hvernig nýleg ummæli Donald Trump og áherslur bandarískra stjórnvalda hafi vakið mikla athygli á svæðinu.

„Þetta var byrjað áður, en síðustu vikur hafa sett sviðsljósið á þetta svæði. Það er eins og það hafi verið kveikt í umræðunni á ný. Nú eru allir að velta fyrir sér hvað bandarísk stjórnvöld eru að hugsa og af hverju þessi mikli áhugi er til staðar,“ sagði Benedikt.

Hann bendir á að fjölmiðlar hafi fjallað mikið um málið og reynt að greina hverjar raunverulegar ástæður Bandaríkjamanna eru fyrir auknum umsvifum á Norðurslóðum.

Fjárfestingartækifæri fyrir Ísland

Hann benti einnig á að vegna stærðar fjárfestinganna á svæðinu væri ljóst að fjármagnið þyrfti að koma að hluta frá erlendum fjárfestum. „Það eru mjög stór verkefni í gangi og fjárfestingarnar eru umfangsmiklar. Það er ljóst að alþjóðlegir fjárfestar þurfa að koma að þeim til að þau verði að veruleika,“ bætti Benedikt við.

Að lokum segir hann Norðurslóðir vera komnar í fókus á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og fjárfestar muni halda áfram að fylgjast með þróuninni og taka þátt í henni

Hægt er að sjá brot úr þættinum hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að streymisveitunni Brotkast.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing