Spjallið með Frosta Logasyni | Kynferðisofbeldi í íslenskum fangelsum jafn algengt og annarstaðar

https://www.youtube.com/watch?v=G5W95MfraW8

Spjallið með Frosta Logasyni

Kristel Dögg Vilhjálmsdóttir er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hún er sálfræðimenntuð og gerði nýlega rannsókn á ofbeldi innan veggja íslenskra fangelsa. Hún segir þörf á úrbótum á aðstoð við fanga og telur mikilvægt að opnað sé á umræðu um að fangar geti líka verið þolendur. Kristel segir talsvert um að fangar verði fyrir kynferðisofbeldi í íslenskum fangelsunum og að tíðni slíkra mála sé hlutfallslega á pari við það sem gerist í löndunum í kringum okkur. Eðli málsins samkvæmt segir Kristel það vera mjög dulinn málaflokk sem fáir vilji ræða um. Þá segir hún fanga jafnvel eiga enn erfiðara með að opna sig um slíkt ofbeldi og að þeir eigi þannig sérstaklega erfitt með að vinna úr slíkum áföllum sem geti svo aftur haft verulega slæm áhrif á batalíkur þeirra og betrun.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

- Auglýsing -