Eldgos hófst að nýju í Holuhrauni norðan Vatnajökuls um klukkan fimm í morgun. Gosið er hraungos, stærra en síðast en á sömu sprungu, samkvæmt frétt RÚV.
Eftirfarandi myndband náðist á svæðinu í morgun.
RÚV hefur eftir Ármanni Höskuldssyni eldfjallafræðingi að mikil virkni sé í jarðeldunum og að áætlað hraunrennsli sé 10-20 sinnum meira en í gosinu aðfaranótt föstudags.
Almannavarnir hafa ákveðið að áfram verði hættustig í gildi en þegar fyrra gosið hófst á þessum slóðum var lýst yfir neyðarstigi. Veðurstofan hefur fært litakóða upp í rautt og bannað flug yfir gosstöðvunum.
Þetta er þriðja eldgosið á Bárðarbungusvæðinu á rúmri viku.