Fasteignasalinn Hannes Steindórsson, sem stundum hefur verið nefndur fasteignasali stjarnanna, birti fermingarmynd af sér í heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í dag. Undir fermingarmyndinni virðist Hannes vitna í sjálfan sig þegar hann var 14 ára:
Ég ætla að verða fasteignasali þegar ég verð stór.
Þá vitnar hann í viðskiptavini sína og segir að þeir séu besta auglýsingin. Afar óalgengt er að fasteignasalar auglýsi með þessum hætti. Skemmst er þó að minnast þegar Högni Kjartan Þorkelsson, 21 árs fasteignasali, keypti baksíðuna á nýju símaskránni til þess að auglýsa sig árið 2008.