Auglýsing

Ögrandi myndband frá Rökkurró: „Allt fyrir listina“

Hljómsveitin Rökkurró sendi í ágúst frá sér myndband við lagið The Backbone. Myndbandið er ansi ögrandi en í því sjást fáklæddir líkamar baðaðir upp úr gulum og skærgrænum vökva. Lagið er á næstu plötu hljómsveitarinnar sem kemur út í haust.

Hildur Kristín Stefánsdóttir, söngkona Rökkurró segir í samtali við DV að hún hafi lítið fengið að vita um hvernig myndbandið ætti að vera áður en það var tekið upp.

Það eina sem ég vissi var að ég ætti að vera í fötum sem mættu verða skítug. Þetta er sýróp blandað með hveiti og matarlit og þetta var mjög ógeðslegt, vægast sagt. Ég var eiginlega að kafna allan tímann. Það er mjög erfitt að syngja á meðan það er verið að hella einhverju svona slími yfir mann. Ég var alveg með í nefinu og augunum og var við það kúgast, en ég reyndi hvað ég gat að hætta ekki . Allt fyrir listina!

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing