Auglýsing

Keypti skó eftir að eiginmaðurinn vann 53 milljónir

Auðvelt var að hafa upp á lottóvinningshöfum helgarinnar þar sem miðarnir voru báðir keyptir á lotto.is. Vinningshafarnir tveir fengu rúmlega 53 milljónir og annar var ungur maður sem býr í Reykjavík ásamt konu og börnum.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að þau hjón hafi bæði keypt miða, hún á sölustað og hann á netinu:

Ekkert kom á miðann hennar en hann uppgötvaði að tölur kvöldsins hefðu komið á miðann sem keyptur var á netinu. Hann hélt ró sinni, eldaði súpu og eftir að fjölskyldan hafði lokið við að snæða bað hann konuna sína að koma með sér að tölvunni. Frúin átti bágt með að trúa þessu en til að halda upp á þetta, þá fór hún og keypti sér nýja skó.

Hinn vinningshafinn hafði ekki hugmynd um vinninginn fyrr en Íslensk getspá hafði samband. Báðum stendur fjármálaráðgjöf til boða.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing