Söngvarinn Adam Levine, úr hljómsveitinni Maroon 5, keppti við spjallþáttastjórnandann Jimmy Fallon í eftirhermum í þætti þess síðarnefnda í gær.
Levine stal algjörlega senunni og tók meðal annars Höfuð, herðar, hné og tær í flutningi Frank Sinatra og stóð sig einnig mjög vel sem Eddie Vedder.