Auglýsing

Peter Schmeichel á Íslandi

Hinn danski Peter Schmeichel, fyrrverandi markvörður Manchester United og danska landsliðsins lenti á Íslandi í kvöld. Þetta kemur fram á Twitter-síðu kappans.

Schmeichel er hér á landi til að taka þátt í hjólreiðaáskoruninni the Fire & Ice Challenge ásamt 30 öðrum hjólreiðamönnum. Schmeichel og félagar hjóla til að safna peningum til að bæta líf ungs fólks. Hann hafði þetta um áskorunina að segja á vefsíðu Manchester United Foundation:

Ísland er eitt fegursta land Evrópu og þessi áskorun verður gríðarlega krefjandi. Ég er viss um að þetta verði rosalega gefandi. Ég get ekki beðið eftir að hitta hina hjólreiðamennina.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing