Auglýsing

Húsmóðir í Grafarholti kennir eiginmanni sínum á uppþvottavél

Myndband sem sýnir Huldu Proppé kenna Gassa Ólafssyni, eiginmanni sínum, á uppþvottavél heimilisins fer nú eins og eldur í sinu á Facebook. Nútíminn spurði Huldu hvort kennslan hafi skilað árangri:

Ég skellti þessu myndbandi náttúrulega bara inn í gærkvöldi svo ég veit ekki hversu mikið ég get dæmt framfarir. Hins vegar tók húsbandið sig til og gekk frá eftir kvöldmatinn í gær og ég get ekki annað sagt en að sú athöfn hafi verið leyst með stakri prýði. Ég vona að hann og synirnir standi sig vel. Ef svo fer, þá er aldrei að vita nema ég skelli nokkrum öðrum myndböndum inn þar sem ég tek á öðrum þáttum sem betur mættu fara. Það verður bara að koma í ljós og fer alfarið eftir árangrinum.

Hulda tekur þó fram að myndbandið sé hugsað í gríni — þó alvaran sé vissulega undirliggjandi.

Leiðrétting: Í morgun stóð að Hulda sé húsmóðir í Kópavogi. Það er rangt. Grafarholt var það.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing