Auglýsing

Kærasta Fjölnis mátar Spice World-úlpu Mel B

Varð að máta þar sem maður er af Spice Girls-kynslóðinni. Þetta er úlpan sem Mel B var í Spice World.

Þetta segir Þóra Steina Jónsdóttir, kærasta Fjölnis Þorgeirssonar á Facebook-síðu sinni.

Myndin hefur vakið talsverða athygli og kátínu vina Þóru Steinu. Hún fann úlpuna í geymslunni hjá Fjölni, en eins og alþjóð veit var Kryddstúlkan Mel B kærastan hans á tíunda áratugnum.

Mel B klæddist úlpunni í kvikmyndinni Spice World, sem kom úr árið 1997. Nútíminn hafði samband við Þóru Steinu sem gaf góðfúslegt leyfi fyrir birtingu myndarinnar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing