Hópurinn á bakvið Áramótaskaup Sjónvarpsins í fyrra hyggst ekki endurtaka leikinn í ár. Þetta staðfestir leikstjórinn Kristófer Dignus en Ari Eldjárn, Bragi Valdimar Skúlason, Guðmundur Pálsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon, Saga Garðarsdóttir, Steindi Jr. skrifuðu handritið.
Stór hluti af þessum hópi er á bakvið Drekasvæðið, sem er nýr Sketsaþáttur sem verður á RÚV í vetur en Pétur, Ilmur og Steindi verða öll í þáttum á Stöð 2.
Ekki kemur fram hver tekur við Skaupinu í veglegum dagskrárbæklingi sem RÚV dreifði á öll heimili fyrir helgi. Þá er Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, þögull sem gröfin um hvaða leikstjóri og ekki síst hvaða höfundar hreppa hnossið.
Skaupið í fyrra var ansi vel heppnað og byrjunaratriðið er enn í fersku minni: