Landssöfnunin Stand Up To Cancer var í beinni útsendingu í Bandaríkjunum á föstudag. Þar komu saman nokkrir af vinsælustu leikurum, grínistum og tónlistarmönnum landsins og söfnuðu peningum fyrir krabbameinsrannsóknir.
Í daga hafa 109 milljónir dala safnast í átakinu eða um 13 milljarðar íslenskra króna.
Á meðal þeirra sem tóku þátt í söfnuninni var Will Ferrell, sem kom fram í hlutverki fréttamannsins Ron Burgundy úr gamanmyndunum Anchorman. Þetta myndband sýnir hvernig Burgundy tæklar krabbamein.