Auglýsing

Dumb and Dumber sýnd í bílabíói

Gamanmyndin Dumb and Dumber með Jim Carrey og Jeff Daniels í aðalhlutverkum verður sýnd í bílabíói RIFF kvikmyndahátíðar, sem hefst 25. september.

Þessi bráðfyndna vegamynd var ein af þeim fyrstu á ferli Jim Carrey og átti þátt í að gera hann að stórstjörnu. Nú þegar framhaldið er væntanlegt í nóvember er ekki seinna vænna að endurnýja kynnin við þá Harry og Lloyd.

Myndin verður sýnd á bílaplaninu við 1. hæð Smáralindar en hátíðin verður með metnaðarfulla dagskrá í Kópavogi á meðan hátíðinni stendur, dagana 25. september til 5. október og verður bílabíóið einn stærsti viðburður dagskrárinnar.

Þetta verður í þriðja skipti sem RIFF stendur fyrir bílabíói og hafa ávallt færri komist að en vilja.

Miðasala fer fram á riff.is og er miðaverð 1.000 krónur á einstakling.

Svo er framhaldið væntanlegt:

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing