Auglýsing

Frosti á brimbrettanámskeið á Balí

Aðdáendur útvarpsþáttarins Harmageddon á X977 geta kysst Froga Logason, annan stjórnanda þáttarins bless, því hann er á leiðnni í sex vikna ferðalag um Asíu og Afríku. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Anna Tara Andrésdóttir leysir Frosta af og verður Mána til halds og trausts. Rödd hennar hefur einnig ómað í kynlífsþættinum Kynlegir kvistir á sömu stöð og hún leysti einnig af í Harmageddon í sumar.

Frosti fer í ferðalagið ásamt Sigurði Þorsteinssyni, félaga sínum, og ætla þeir að birta reglulega pistla inni á Vísi.is ásamt því að Frosti verður með innslög í Harmageddon. Félagarnir ætla meðal annars í safarí í Suður-Afríku, að búa hjá indverskri fjölskyldu á Indlandi, á brimbrettanámskeið á Balí og læra að kafa í Taílandi.

Við erum sjúklega spenntir að fara enda ævintýri og í raun langþráður draumur hjá okkur báðum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing