Fjölmiðlamennirnir Ómar Úlfur Eyþórsson og Jóhann K. Jóhannsson gátu ekki stillt sig um að smella af þegar þeir komu Valtý Birni til bjargar þegar bíllinn hans bilaði á gatnamótum á Miklubrautar og Lönguhlíðar í morgun.
Ómar segir í samtali við Nútímann að Valtýr hafi farið fram á að gert yrði við bílinn svo hann gæti haldið áfram. En það er alltaf tilefni fyrir eina selfí:
Ómar var annars kampakátur með góða björgun:
Heyrðu, það kom neyðarkall frá Valtaranum og fárið var algert hjá okkar manni. Talið er að blautt kerti hafi knésett Toyotuna. Ég og Jói K vorum þeir einu sem sinntum neyðarkallinu.