Auglýsing

Big Bang Theory-stjarna tjáir sig um lekamálið

Kaley Cuoco, aðalleikkona gamanþáttanna The Big Bang Theory, tjáði sig um stóra lekamálið í Hollywood hjá spjallþáttastjórnandanum Jimmy Kimmel í síðustu viku.

Eins og Nútíminn hefur greint frá rændu tölvuþrjótar einkamyndum af fjölmörgum leikkonum og fyrirsætum en Cuoco var ein af þeim:

Ég var ein af þeim sem var „hökkuð“ — þetta var truflandi. Ég ætla bara að vera hreinskilin: Ég fæ tilkynningu í símann þegar nafnið mitt birtist á fréttasíðum vegna þess að ég er með þráhyggju fyrir því að vita alltaf hvað er í gangi. Á hverjum einasta degi fæ ég tilkynningar um nektarmyndir af sjálfri mér. Þetta hefur gengið á síðustu ár en það er aldrei um raunverulegar myndir að ræða. Svo kom tilkynning um lekann og ég fór að fá tölvupósta frá fólki og ákvað því að skoða málið. Þá voru þetta raunverulegar myndir.

https://www.youtube.com/watch?v=G5SIm6-A1IY

 

 

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing