Auglýsing

Leikari játar barnaníð: Klipptur úr Scandal og rekinn úr Ted 2

Bandaríska fréttasíðan TMZ birti í gær upptöku þar sem Hollywood-leikarinn Stephen Collins heyrist játa barnaníð. Upptökuna má heyra hér fyrir neðan.

Framleiðendur gamanmyndarinnar Ted 2 ráku í kjölfarið leikarann, sem átti að fara með hlutverk í myndinni. Þá verður hann klipptur úr þætti í nýjustu þáttaröðinni af Scandal, sem hófst í september. Þetta staðfesta framleiðendur Scandal í frétt á vef Huffington Post.

 

 

 

 

 

 

 

Í upptökunni heyrist þegar Stephen Collins játar barnaníð en Faye Grant, fyrrverandi eiginkona hans og sálfræðingur eru viðstödd. Grant tók upp játninguna í leyni þegar þau voru að skilja árið 2012.

Samkvæmt TMZ hefur lögreglan í New York staðfest að málið sé nú rannsakað en talið er að brotaþolar Collins séu þrír. Í upptökunni játar hann að hafa beitt 11 ára frænku fyrstu eiginkonu sinnar grófu kynferðisofbeldi.

Stephen Collins lék pabbann í þáttunum 7th Heaven og hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum síðustu áratugi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing