Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir tekur sæti á Alþingi í dag í fjarveru Vigdísar Hauksdóttur. Hún skipaði þriðja sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu alþingiskosningum.
Sveinbjörg Birna, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, er einn umdeildasti stjórnmálamaður landsins eftir að hafa óvænt tekið oddvitasæti framboðsins fyrir kosningar í vor.
Fleiri varamenn taka sæti í dag; þau Álfheiður Ingadóttir, Björn Valur Gíslason, Oddgeir Ágúst Ottesen og Óli Björn Kárason.
Ekki náðist í Sveinbjörgu við vinnslu fréttarinnar.