Auglýsing

Floyd Mayweather kennir Bieber að boxa

Kanadíski söngvarinn Justin Bieber birti í gær myndband á Instagram sem sýnir hann í boxþjálfun hjá engum öðrum en Floyd Mayweather Jr.

Bieber virtist ekki vera að boxa í fyrsta skipti. Sérstaka athygli vakti þó að hann klæddist stuttbuxum merktum körfuboltaliðinu Los Angeles Clippers en hann hefur hingað til verið á Miami Heat-vagninum.

Floyd Mayweather Jr. er tekjuhæsti íþróttamaður heims en eitt af viðurnefnum hans er einmitt Money. Hann hefur aldrei tapað bardaga í þau 47 skipti sem hann hefur barist sem atvinnumaður.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing