Auglýsing

Renée Zellweger: Breytt útlit ávöxtur hamingju

Leikkonan Renée Zellweger hefur brugðist við fréttum af breyttu útliti hennar og segir það vera ávöxtur langþráðar hamingju.

Eins og Nútíminn greindi frá á dögunum hefur leikkonan breyst mikið og er í raun óþekkjanleg. Zellweger sendi frá sér yfirlýsingu í vikunni og sagði að mögulega liti hún öðruvísi út. „En er það ekki eðlilegt þegar fólk eldist?“

Ég er ánægð með að fólki finnist ég líta öðruvísi út. Ég lifi breyttu og hamingjusömu lífi. Mér finnst frábært að það sjáist. Vinir mínir segja að ég líti út fyrir að vera friðsöm. Ég er heilbrigð — mér gekk ekkert sérstaklega vel í því í langan tíma.

Renée Zellweger leikur í myndinni The Whole Truth, sem er væntanleg á næsta ári.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing