Landhelgisgæslan keypti í lok síðasta árs 250 MP5 hríðskotabyssur af norska hernum. Samningur um kaupin var undirritaður 17. desember í fyrra. Þetta staðfestir Dag Aamont, upplýsingafulltrúi norska hersins. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Örskýring: Lögreglan og byssurnar
Samkvæmt RÚV greiðir Gæslan 625 þúsund norskar krónur fyrir byssurnar eða sem nemur um 11,5 milljónum króna. Hver byssa kostar því um 46 þúsund krónur.
Í samtali við RÚV vill Aamont ekki upplýsa meira um málið að svo stöddu. Hann vill ekkert segja um þá fullyrðingu íslenskra stjórnvalda um að byssurnar hafi verið gjöf frá norska hernum.
Talað hefur verið um að hingað hafi komið 150 hríðskotabyssur. Þær eru í umsjá lögreglunnar. Það er því óvíst hvar hinar 100 eru en samkvæmt RÚV er líklegt að þær hafi farið til Landhelgisgæslunnar.
Fylgdu Nútímanum á Facebook og þú missir ekki af einni einustu frétt.