Auglýsing

Konan sem ætlar að giftast Charles Manson

Banda­ríski fjölda­morðing­inn Char­les Man­son hefur fengið heim­ild til að ganga í hjóna­band. Þetta kemur fram á vef BBC. Man­son hyggst kvæn­ast hinni 26 ára gömlu Afton Elaine Burton. Man­son er átt­ræður.

Burton hefur heimsótt Manson í fangelsi í Corcoran í Kaliforníu undanfarin ár. Hún kallar sig Star og sagðist í viðtali við CNN á síðasta ári hafa byrjað að kynna sér Manson 16 ára gömul.

Hún segist hafa heillast af Manson eftir að hún las umhverfisstefnu hans, sem hann kallar ATWA, eða air, trees, water og animals. Burton flutti til Corcoran í óþökk foreldra sinna og birtir stuðningsbréf frá aðdáendum Manson á bloggsíðu sinni.

Vefsíðan Manson Direct hefur birt myndir af parinu.

Beiðni Manson um reynslulausn hefur verið hafnað 16 sinnum en til stendur að taka fyrir næstu beiðni hans eftir 13 ár. Burton hefur sagt að hún trúi á sakleysi Manson.

Hér má sjá einhvers konar yfirlýsingu frá Burton:

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing