Gamla bíó við Ingólfsstræti hefur gengið endurnýjun lífdaga. Gólf hússins hefur verið sléttað þannig að hægt verður að halda standandi tónleika fyrir allt að 750 manns. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.
Nasa við Austurvöll lokaði í júní árið 2012 og til stendur að reisa hótel þar sem tónleikastaðurinn var til húsa. Þessum áformum var mótmælt harðlega á sínum tíma og voru rökin meðal annars þau að enginn sambærilegur tónleikastaður væri í Reykjavík.
Nasa hentaði vel undir stærri tónleika og gat tekið á móti fleiri en 500 manns. Mugison, Gusgus, Hjálmar og fleiri vinsælir tónlistarmenn voru duglegir við að koma þar fram ásamt því að staðurinn var ávallt mjög vinsæll á Iceland Airwaves-hátíðinni.
Það mætti því segja að loksins sé kominn staður sem fyllir skarðið sem Nasa skildi eftir sig.
Guðvarður Gíslason, einn af þeim sem stendur að baki endurnýjun Gamla bíós, segir í Viðskiptablaðinu að húsið eigi að vera margnota.
Við erum að breyta húsinu úr því að vera leikhús með bíóuppstillingum yfir í það að slétta gólfið svo hægt sé að vera með sitjandi og standandi tónleika, leikrit, ráðstefnur og fundi.
Gamla bíó var notað á Iceland Airwaves á dögunum og hljómsveitin Kaleo heldur þar tónleika 29. nóvember næstkomandi.