Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra ætlar að segja af sér í dag, samkvæmt heimildum Nútímans.
Samkvæmt heimildum Nútímans hefur Hanna Birna sagt fólki innan Sjálfstæðisflokksins að hún ætli að segja af sér í dag. Hún hættir þá sem innanríkisráðherra en Nútíminn hefur ekki upplýsingar um hvort hún ætli einnig að segja af sér þingmennsku.
Uppfært: RÚV hefur einnig birt frétt um málið. Þar kemur fram að Hanna ætli að taka sér frí fá stjórnmálum fram að áramótum og snúa þá aftur á þing. Ekki liggur fyrir hver tekur við embætti innanríkisráðherra.
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu, játaði 11. nóvember að hafa afhent skjal úr ráðuneytinu varðandi hælisleitanda til fjölmiðla í nóvember 2013.
Örskýring: Lekamálið í 200 orðum
Lekamálið hófst í 20. nóvember á síðasta ári þegar upplýsingum um hælisleitandann Tony Omos var lekið úr innanríkisráðuneytinu. Málið stendur ennþá yfir.
Ekki náðist í Þóreyju Vilhjálsmdóttir, aðstoðarmann Hönnu Birnu, við vinnslu fréttarinnar.