Eins og Nútíminn greindi frá fyrstur fjölmiðla þá er ástralski leikarinn Alan Fletcher væntanlegur til landsins í vikunni. Hann hefur verið reglulegur gestur á skjám landsmanna undanfarin ár sem læknirinn Karl Kennedy í Nágrönnum.
Fletcher sendir skilaboð til Íslendinga í gegnum Facebook-síðu fyrirtækisins Reykjavik By Night, sem aðstoðar hann við komuna til landsins. Fletcher segist vera gríðarlega spenntur fyrir komunni til landsins en hann kemur fram á Spot á föstudaginn.
Skilaboðin frá Alan Fletcher má sjá hér fyrir neðan: