Plötusnúðurinn Óli Geir segir að honum sé neitað að koma fram á unglingaskemmtunum í nánast hverjum mánuði. Nú síðast var hann afbókaður á skemmtun Samvest í Bolungarvík. „Ég er virkilega sár yfir því að mega ekki koma og spila fyrir ykkur, við hefðum skemmt okkur vel saman,“ segir Óli Geir á Facebook-síðu sinni.
Óli segir í færslunni að ástæðan fyrir því að honum sé neitað að koma fram á unglingaskemmtunum sé sú að honum er sagt að hann sé ekki góð fyrirmynd:
Ástæðan sem mér er gefin er sú að ég hélt Dirty Night fyrir 5 árum og að krakkar undir aldri mæti á vínveitingastaði sem ég kem fram á, eins og það sé mér að kenna. Ég er DJ, ekki dyravörður.
Óli spyr á móti hvað felst í að vera fyrirmynd.
„Ég reyki ekki, ég dópa ekki. Ég stunda líkamsrækt, ég er einkaþjálfari, ég stunda íþróttir og hef gert alla mína ævi. Ég held reglulega viðburði til styrktar góðgerðamálum og lengi gæti ég haldið áfram,“ skrifar hann.
„Trekk í trekk lendi ég í því að vera bókaður á grunnskólaskemmtun, sem eru by the way skemmtilegustu gigg til að koma fram á. Í nánast hvert einasta skipti er ég afbókaður af skólastjóra, kennara eða forsvarsmanni úr félagsmiðstöð.“
Óli segir í færslunni sorglegt að þessir aðilar eigi að kenna krökkum að fyrirgefa.
„Allir eiga skilið annan séns, batnandi mönnum er best að lifa og allir gera mistök, eins og ég gerði með eitthvað Dirty Night partý þegar þessir unglingar í dag voru í bleyju,“ segir hann.
„En einhvernvegin gilda þessar reglur ekki um mig. Ég hef verið á svörtum lista hjá félagsmiðstöðvum í mörg ár og sama hvað ég geri, sama hvað ég reyni, það ætlar aldrei að taka enda. Ef ég er bókaður í einhvern skóla/félagsmiðstöð þá eru ákveðnir aðilar sem hringja í þessar stofnanir og fá þau til að afbóka mig, jújú, því ég er bara alls engin fyrirmynd.“
Hann tekur fram að hvorki sé um væl né biturleiki að ræða og segist birta færsluna vegna þess að fólk haldi að hann sé að sjálfur að hætta við að koma fram.
„Stundum er logið af þeim til að hafa þau róleg með því að segja að ég hafi hætt við sjálfur að koma, ekki verið laus þennan dag, ég hafi ekki komist og þess háttar, það finnst mér virkilega brutal.“