Auglýsing

Gíslataka í Frakklandi: Bræðurnir skotnir til bana í umsátri lögreglu

Uppfært kl. 17.19: Bræðurnir hafa verið drepnir. Sérsveit réðist inn í prentsmiðjuna sem Chérif og Saïd Kouachi héldu til í og voru þeir skotnir til bana. Fjórir gíslar létu lífið í umsátrinu.

Kouachi-bræðurnir, sem grunaðir eru um árásina á skrifstofur Charlie Hebdo, eru með minnst einn gísl í haldi í prentsmiðju Dammartin-en-Goële, 35 kílómetra norðaustur af París.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu Sky fréttastofunnar í spilaranum hér fyrir neðan.

  • Lögreglan stöðvaði bræðurna í morgun við vegatálma eftir að kona sem þeir stálu bíl af gat borið kennsl á þá. Í kjölfarið hófst skotbardagi og eftirför. Bræðurnir komust undan.
  • Sky News greindi frá því í morgun að Kouachi-bræðurnir hafi sagt lögreglu að þeir séu tilbúnir að deyja sem píslarvættir.
  • Samtal samningamanns lögreglu og bræðranna geti tekið marga klukkutíma.

Lögregluaðgerðin er gríðarlega umfangsmikil. Fleiri en 88 þúsund manns taka þátt í aðgerðunum:

Horfðu á beina útsendingu Sky News hér:

http://youtu.be/VYlQJbsVs48

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing