Kris Jenner, móðir Kardashian-systranna og fyrrverandi eiginkona frjálsíþróttamannsins Bruce Jenner, er brjáluð vegna forsíðu tímaritsins In Touch sem kom út í vikunni.
Á forsíðunni er mynd af Bruce Jenner sem tímaritið hefur átt við í Photoshop svo að hann líti meira út eins og kona. Forsíðan hefur vakið talsverða athygli í Bandaríkjunum en í blaðinu er fjallað um umbreytingu Jenner, sem er talinn hafa byrjað í kynleiðréttingarferli eftir að þau hjónin skildu.
Fjölmiðlar hafa fjalla um umbreytingu Bruce Jenner undanfarna mánuði en hann hefur ekki tjáð sig um hana opinberlega.
Samkvæmt vef TMZ er Kris Jenner bálreið en Bruce Jenner pollrólegur yfir þessu öllu og lætur sér fátt um finnast.