Söngkonan Miley Cyrus kann ekki að stafa ættarnafn kærastans síns. Þetta viðurkenndi hún á dögunum í viðtali í þættinum Good Morning America.
Kærasti Cyrus heitir Patrick Schwarzenegger og er sonur Arnolds. Spurð út í stafsetningu nafnsins sagði Miley lauflétt:
Ég get ekki sagt ykkur hvernig það er stafað. En það er allavega ekki „T“ í því.
Miley mætti í þáttinn til að kynna snyrtivörulínu sína, Viva Glam frá MAC. Allur ágóði af sölu varalitar í línunni rennur í sjóð sem styrkir fólk með eyðni í baráttu sinni við sjúkdóminn.
Þá var hún spurð í viðtalinu hvort hún sé góð fyrirmynd. Hún sagði svo vera þar sem hún berst fyrir því að fólk fái að vera eins og það er.