Tónlistarkonan Taylor Swift birti á dögunum mynd af sér og vinkonum sínum í sólinni á Havaí. Myndin er skemmtileg en fjölmiðlar vestanhafs hafa veitt því sérstaka athygli að hún með birtingu myndarinnar er hún loksins að afhjúpa á sér naflann. Þar höfum við það.
Dularfullur nafli söngkonunnar hefur áður verið til umfjöllunar í fjölmiðlum og í viðtali við tímaritið Lucky sagði hún að það væri ástæða fyrir því að kjósi að hylja naflann:
Þegar maður byrjar að sýna á sér naflann er maður að skuldbinda sig í allt þetta dæmi með kviðinn. Ég vil bara skuldbinda mig að hluta til í þetta kviðdæmi.
Söngkonan er væntanlega að vísa í tónlistarfólk sem sýnir á sér kviðinn á sviði og á myndum.
En hér er þessi umtalaðasti nafli heims um þessar mundir:
Hlustum líka á einn smell með söngkonunni:
Lækaðu Nútímann á Facebook og ekki missa af neinu!