Ansi furðulegt brot átti sér stað í leik Brasilíu og Króatíu í 16-liða úrslitunum á HM í Katar í gær þar sem Króatar unnu nauman sigur, 26-25.
Í myndskeiðinu sem má sjá hér fyrir neðan sést þegar Króatinn Igor Vori stillir sér upp í vörn gegn línumanninum Thiagus Petrus. Þegar sókn Brasilíu er komin af stað sést svo hvernig hann virðist pota í rassinn á andstæðingi sínum, sem bregst ókvæða við.
Einhver grínisti hefur bætt tónlist og hljóðum við myndbandið en það sýnir engu að síður hvað átti sér stað:
https://www.youtube.com/watch?v=7Nne9OPPfbE