Bruce Jenner, fyrrverandi eiginmaður Kris Jenner, móður Kardashian systranna, hefur unnið að heimildarþáttum um stórar breytingar í lífi sínu undanfarna mánuði.
Samkvæmt vefmiðlinum TMZ hefur Kim Kardashian, stjúpdóttir hans, kallað ferlið „ferðalag“ Jenner. Þessi orð Kardashian hafa gefið orðrómi um kynleiðréttingu Bruce Jenner byr undir báða vængi en talið er að hann hafi lifað lífi sínu sem kona undanfarin misseri.
Sjá einnig: Kris Jenner brjáluð vegna forsíðu In Touch
Þættirnir verða sýndir á sjónvarpsstöðinni E!, eins og þættirnir um Kardashian-fjölskylduna, og samkvæmt fjölmörgum heimildarmönnum TMZ eru viðtöl við Kardashian-systurnar í þáttunum. Sömu heimildir herma að þær hafi stutt Jenner með ráðum og dáð í gegnum ferlið.
Einnig er rætt við Kris Jenner, sem er sögð hafa misst það á einum tímapunkti.