Heil kynslóð af fólki man eftir kvikmyndinni Happy Gilmore með Adam Sandler í aðalhlutverki. Hún var frumsýnd um það leyti sem Adam Sandler var fyndinn.
Adam Sandler og Bob Barker hittust á ný á dögunum en þeir léku saman í frægu atriði í Happy Gilmore sem endaði með hörðum slagsmálum.
Í þetta skipti slógust þeir á sjúkrahúsi og grínuðu með ebólu og David Spade. Allt var þetta gert til að styrkja gott málefni en atriðið var hluti af skemmtun til styrktar einhverfra.
Nú þarf maður eiginlega að rifja upp Happy Gilmore.
https://www.youtube.com/watch?v=b54pmFhzfDg&