Auglýsing

Zoolander snýr aftur: Stal senunni á tískusýningu Valentino

Ben Stiller stal senunni í gervi fyrirsætunnar Derek Zoolander á tískusýningu Valentino á tískuvikunni í París í dag. Myndband af ótrúlegri frammistöðu Zoolander má sjá hér fyrir neðan.

Ben Stiller og Owen Wilson eru staddir í París og hafa komið fram í gervum Zoolander og Hansel á tískuvikunni. Framleiðsla á framhaldi grínmyndarinnar um Zoolander hefst í Róm á næstunni en spennandi verður að sjá hvernig tekst til.

Þeir stilltu sér meira að segja upp með tískudrottningunni Önnu Wintour.

Gamanmyndin Zoolander kom út árið 2001 og sló í gegn.

Hér má sjá þegar Zoolander sýndi fyrir Valentino í dag.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing