Auglýsing

Vélmenni plataði notendur Tinder

Myndarleg 25 ára stúlka skaut upp kollinum á Tinder um helgina. Hún sagðist heita Ava og vera í Austin í Texas á meðan tónlistarhatíðin SXSW fór fram.

Ekki var þó allt með feldu og Ava reyndist ekki vera raunveruleg manneskja. Spenntir notendur fengu að kynnast því þegar þeir spjölluðu við hana.

Vefurinn Adweek fjallar um málið og birtir þetta spjall notanda við Övu.

Hún reyndist hafa talsverðan áhuga á „mennsku“ hans og spurði hann út í ýmislegt.

Ava reyndist vera að kynna kvikmyndina Ex Machina sem var frumsýnd á hátíðinni um helgina. Sænska leikkonan Alicia Vikander er á myndunum en hún leikur einhvers konar gervigreindan róbóta í myndinni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing