Auðunn Blöndal hyggst sýna hvað gerist bakvið tjöldin á stærsta bardagakvöldi ársins í Las Vegas. Hann fylgir Gunnar Nelson vestur um haf.
Gunnar Nelson verður einn af þeim sem Auðunn Blöndal fjallar um í annarri þáttaröð af Atvinnumönnunum okkar, samkvæmt heimildum Nútímans. Gunnar berst við hinn breska John Hathaway í Las Vegas í júlí og Auðunn fylgir honum vestur um haf. Vandræðagemlingurinn Conor McGregor berst um titil á sama kvöldi en þetta er stærsta bardagakvöld ársins í UFC.
Sjá einnig: Gunnar Nelson berst í Las Vegas
Fyrsta þáttaröðin af Atvinnumönnunum okkar þótti afar vel heppnuð en hún var á dagskrá Stöðvar 2 Sport fyrir fimm árum. Stórveldið framleiðir nýju þáttaröðina og auglýsingaleikstjórarnir Sammi og Gunni leikstýra.
Þegar hefur verið staðfest að Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði FC Rosengård í Svíþjóð, Gylfi Sigurðsson, leikmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni og Aron Pálmarsson, sem leikur nú með Kiel í Þýskalandi, verði í nýju þáttaröðinni.
Leikstjórinn og markvörður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, Hannes Þór Halldórsson, leikstýrði fyrstu þáttaröðinni af atvinnumönnunum okkar. Þar tók Auðunn Blöndal hús á Logi Geirssyni, Hermanni Hreiðarssyni, Guðjóni Vali Sigurðssyni, Grétari Rafni Steinssyni, Ólafi Stefánssyni og Eiði Smára Guðjohnsen.